Huldukonan

Hófsemi í dirfsku er fólgin í því að vita hversu lengi er hægt að ganga of langt

01.01.2009 17:25:12 / hulda

Gleðilegt nýtt ár...!!

happy-new-year-1.gif picture by huldukonan

Gleðilegt ár og takk fyrir það liðna, megi þið öll njóta gleði og friðar á nýju ári!!

Later.......


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.12.2008 15:00:49 / hulda

Gamlársdagur.......

Já, vá!  8|
Árið er senn á enda og ég er mjög fegin því að þetta hefur verið eitt einkennilegasta ár sem ég hef lifað lengi.   Allur tilfinningaskalinn hefur verið spilaður á árinu og svo undarlega vill til að þetta ár hefur breytt mér rosalega mikið og þá sérstaklega síðustu sex vikurnar.   Og sú breyting er bara til batnaðar fyrir mig svo ég hlakka til næsta árs og ætla að halda áfram að reyna að bæta sjálfa mig og halda áfram að standa með sjálfri mér.   Ég er mjög sátt í eigin skinni og segi eins og Sálin; mér gæti ekki liðið öllu betur!   Hljómar kannski eins og argasta klisja (hrikalega er þetta ljótt orð, finn bara ekkert sem á betur við) en þeir sem þekkja mig vita hvað ég er að meina.  :haha:
Fortíðin minnti pínulítið á sig í gær þegar ég ætlaði að redda syninum nýjum síma og ég komst að því að kortið mitt er tengt merkingu sem sett var á fyrir rúmlega sex árum síðan og það gerði mig smá dapra en samt bara í eitt gott kortér!  Ég hafði bara ekki hugmynd um þetta og þjónustufulltrúinn minn kom algjörlega ofan af fjöllum enda allt í góðu.   Fór hún svo bara í það í morgun að fá þetta leiðrétt og eru allir tilbúnir til að leysa málið, gerist bara ekki alveg á einni nóttu.
Bankinn minn er enn í full swing, reyndar enn á gálgafresti til 28. janúar en við ættum nú að átta okkur á því að ef ekki væri vilji til að hafa hann á lífi væri ekki verið að veita áframhaldandi frest.   Svo ég er mjög bjartsýn á framhaldið.

Takk elskurnar, fyrir gamla árið og megi það nýja færa okkur öllum enn meiri gleði og hamingju!    
Ég segi bara eins og Rúnar heitinn Júlíusson:  "Klikkar ekki dagur..." :d

Later........

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.10.2008 22:44:19 / hulda

Október.........!!

Já, sæææææll !!   
Eigum við að ræða það eitthvað?

Ágúst var ekki góður í ár, september var verri svo ég hlakkaði mikið til að fá október á svæðið því það hefur yfirleitt verið mér frekar góður mánuður.   En vá! 8|  Að vísu hefur maður ekkert vald á aðstæðum þessa dagana og maður tekur einn dag í einu. Í gær stóðum við frammi fyrir gjaldþroti á vinnustaðnum en fáum viku í viðbót og let´s face it; það getur margt breyst á viku eins og hraðinn er á öllu þessar vikurnar.  Ég hef fulla trú á að þetta hafist allt saman því það er frábært fólk að vinna í okkar málum.   Þetta er búinn að vera algjör roller coaster tilfinningalega, maður er búinn að taka allan skalann á þetta, fríka út og brotna og gráta og fara svo upp aftur.   Húmorinn er svartur hjá flestum enda kemur kaldhæðnin manni í gegnum dagana. Ég hef líka verið í vafa með námið mitt, allt of mikið sem er að bögga mann og ég er svo eirðarlaus á kvöldin og ekki í stuði fyrir annað en innantóma afþreyingu úr sjónvarpinu.   En ég tók ákvörðun í gær, ég tek tvö af þeim þremur prófum sem í boði eru.  Það góða við þetta er að þessi próf eru alltaf í boði á hverju ári.   Og ég ætla að taka Pollyönnuna á þetta enda er ég vel sett með að eiga ekkert og skulda ekkert og hef engu tapað og allir mínir eru hraustir og ég á knús og get gefið knús hverjum sem það vill þiggja.    
En eitt ljósið í myrkrinu kviknaði í kvöld; Grey´s Anatomy er byrjað aftur:haha:   Það þarf ekkert mikið til að gleðja mann þessa dagana!!

Ef

Ef ég ætti 3000 bros
myndi ég hnoða úr þeim kúlur 
og kasta í andlit allra
klukkan átta 
á mánudagsmorgni

                Andri Snær Magnason

Later........

» 5 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 20:27:05 / hulda

Mamma mia sing-a-long



Þarna var pían síðasta föstudagskvöld, sjáið þið hana?

Smá vísbending.......fjórða röð fyrir miðju.....ásamt öllum hinum bankapíunum mínum, við áttum fjórðu röðina hálfa.

Sem betur fer er ég ekki grenjandi á myndinni og bara syngjandi glöð en það var nokkuð mörgum músum brynnt þarna því myndin er svo yndislegt.   Ég var að sjá hana í annað sinn og skældi helling í bæði skiptin, hún er svo sæt og falleg og pínu sorgleg og svo full af ABBA lögum sem ég er búin að elska næstum alla mína ævi eða since Waterloo í Eurovision.   Tvær myndir í viðbót birtust einnig í sunnudagsmogganum svo kíkið í blaðið og skoðið.   Ég þarf að hnupla mogganum einhvers staðar því ég er ekki áskrifandi.


Later........


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.08.2008 13:58:53 / hulda

Til hamingju Ísland...!!

Og silfrið er í höfn!   

Það er ekki annað hægt en að fyllast miklu stolti af strákunum okkar eftir þessa frækilegu frammistöðu á Olympiuleikunum þar sem þeir hafa rúllað hverri stórþjóðinni upp eftir annarri.   Ég fékk ósk mína uppfyllta með að sjá Sturlu spila en maður fær bara eina ósk í einu uppfyllta.   En sennilega var það nú samt ekki vegna mín sem þeir töpuðu leiknum! 
En HEY!   Silver is the new gold!   
Það var bara hreinlega frábært að horfa á þá í morgun taka við silfurverðlaununum, ég var hálf fegin að vera bara ein heima fyrir framan sjónvarpið og ekki niðri í Smáralind því það var ekki hægt að halda aftur af gleðitárunum.   En svo skellti ég mér niður í Hreyfinu í spinning þar sem allir voru í sömu sigurvímu og ég og fékk ærlega útrás þar!!

Og aftur;  Til hamingju Ísland.....!! :haha:

Later........

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2008 20:42:29 / hulda

Ísland er stórasta land í heimi....!

Ótrúlegur dagur!
Svo ótrúlegur að pían getur ekki nokkurra orða bundist þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar um að vera hætt að þurfa að tjá sig.   Og svo ótrúlega vill til að hún meira að segja horfir á handbolta í sjónvarpinu, ótilneydd og situr sveitt og argandi fyrir framan kassann!   Og tárin trilluðu niður vangana í leikslok, svo ótrúlega stolt af strákunum OKKAR.   Ljóst að gullið er möguleiki og þó við fáum "bara" silfur er þetta ótrúlega frábær árangur.   OK, ég skal hætta að ofnota þetta ótrúlega orð.   Vona bara að ég fái að sjá einn sætasta strákinn í liðinu, Sturlu Ásgeirsson, spila í lokaleiknum, hann er nebbla frændi minn, sko. 8) Ég mun allavega rífa mig upp snemma á sunnudagsmorgun til að fylgjast með leiknum og leggja mitt af mörkunum, þó aðeins sé um andlegan stuðning að ræða.   

Sumarið er á síðustu metrunum, ég er í sumarfríi sem er vel, þurfti virkilega mikið á því að halda.   Langar mikið að skella mér til útlanda en maður fer víst varla einn út þó margir hafi reynt að sannfæra mann um hið gagnstæða.   Sé til hvað setur, hver veit hvað þessi blessaða framtíð ber í skauti sér, hlutirnir hafa átt það til að breytast þegar maður heldur að rétta stefnan sé fundin, og skjóta manni skelk í tá eins og stendur í Birtutextanum.   
En ekkert er ómögulegt!!

Áfram Ísland og koma svo strákar......!!!

Later........

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.06.2008 14:59:20 / hulda

Kannski.......

Kannski verðum við að hitta ranga fólkið áður en við hittum rétta fólkið svo að við kunnum að vera þakklát þegar við hittum loksins þann sem hentar okkur.
Kannski opnast dyr hamingjunnar á einum stað um leið og þær lokast á öðrum, en oft störum við svo lengi á lokuðu dyrnar að við sjáum ekki hinar sem hafa opnast.
Kannski er besti vinurinn sá sem þú getur rólað þér með á veröndinni án þess að segja orð og síðan gengið í burtu og liðið eins og þú hafir átt eitt besta samtal ævi þinnar.
Kannski er satt að við vitum ekki hvað við höfum átt þangað til að við missum það, en það er líka satt að við vitum oft ekki hvers við höfum saknað fyrr en við öðlumst það. Það eitt að gefa einhverjum alla okkar ást tryggir ekki að viðkomandi elski okkur á móti. Ekki búast við ást í skiptum fyrir ást; bíddu þangað til ástin vex í hjörtum annarra og ef það gerist ekki, skaltu þakka fyrir að ástin hafi vaxið og dafnað í þínu hjarta.
Kannski tekur það einungis mínútu að brjóta einhvern niður, klukkutíma að láta sér líka við einhvern og einn dag að verða ástfangin af einhverjum, en það getur tekið lífstíð að gleyma einhverjum.
Kannski ættir þú að reyna að ná í einhvern sem fær þig til að brosa, vegna þess að eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt. Ekki fara eftir útliti, það getur blekkt. Ekki fara eftir auðæfum, þau geta horfið. Finndu einhvern sem fær hjarta þitt til að brosa. Þegar þú fæddist varstu grátandi og allir í kringum þig voru brosandi. Lifðu þannig að þegar þú deyrð verðir þú brosandi og allir í kringum þig grátandi.


Kannski hef ég þegar sett þennan texta hingað inn, mér finnst það líklegt en þetta er svo satt.    Eins og glöggir hafa tekið eftir hefur pían ekki haft mikla þörf fyrir að tjá sig hérna upp á síðkastið og sennilega eru dagar Huldukonunnar taldir í bili.  
Mér líður vel um þessar mundir og ef fólk vill fréttir þarf það bara að hafa samband við mig.   Við sjáum svo hvað setur með þetta allt saman.....

Svo kannski.......:haha:

Later.........


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.04.2008 14:28:44 / hulda

Einu sinni var..........

Peysufatadagur1985.jpg picture by huldukonan



Smá gleðigjafi........

Ég rakst á þessa mynd á netinu og fékk nett kast!   
Peysufatadagurinn í Versló árið 1985 og pían ekkert smá lítil (hef reyndar ekkert hækkað síðan) og mjó þarna með stórt hár!   Myndin er tekin í morgunpartýinu, sem sagt eldsnemma morguns og úti í sólinni, enda er maður eins og sítróna í framan.......   Ég held þetta sé eina myndin sem til er af mér í peysufötunum, ég var svo þreytt eftir daginn að ég skildi þau eftir hjá vinkonu minni því ég gat ekki farið í strætó í þessum þungu fötum og pabbi var tilbúinn heima með myndavélina en.......vonbrigði.......!   Jú, reyndar er til hópmynd að sjálfsögðu og má geta þess til gamans að hluti af henni birtist á fylgiblaði frá Iceland Review og sást pían þar greinilega á forsíðu........

En, gaman að þessu.......:lol:

Gleðilegt sumar, elskurnar mínar....:haha:

Later.......

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.04.2008 16:54:02 / hulda

Vér mótmælum allir........!

pic12273.jpg picture by huldukonan



Svona leit sparigrísinn minn út eftir að ég tæmdi hann til að geta keypt bensín á bílinn!!
Spurning hvenær maður hefur efni á því næst........:$

Later........


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 09:48:41 / hulda

Hvernig strumpur ertu......?

You have a CLUMSY SMURF personality!
Clumsy Smurf


Júbb, ætli það ekki.......
Prófaðu líka.......taktu Smurf Personality Test  og strumpumst saman.....!!

Later...............

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.03.2008 20:01:23 / hulda

Gleðilega páska......

easter.jpg picture by huldukonan

Gleðikona í háska.........:haha:

Later..........

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 21:26:33 / hulda

Gleðilegan Valentínusardag.....

Gleðilegan Valentínusardag, elskurnar mínar!
Þá er það frá og ekki orð um það meir.......!!

Loksins er veðrið og hitastigið farið að verða eðlilegt.   Það er ekkert búið að vera eðlilegt við veðráttuna eins og hún hefur verið meira og minna frá Jóladegi.   Frekar þreytandi að þurfa að moka af bílnum á hverjum morgni og vera samanherptur af kulda.   24 metrar á sekúndu hræða mann ekki lengur eða 20-30 cm jafnfallinn snjór......maður er orðinn öllu vanur.   Föstudagskvöldið síðasta, þegar dýpsta lægð vetrarins kom yfir landið og lögreglan búin að gefa út viðvörun til fólks að vera á ferli, mættum ég og mínir vinnufélagar í partý!!    Ójá, fréttir og veðurfréttir fóru í loftið og út í buskann og Sigmundur Ernir notaði ekki fá orð til að minna mann á það að það væri engum út sigandi í veðrið og fólk ætti að halda sig heimavið en það var gefinn dauðinn og djöfullinn í þetta allt saman, farið í stakkinn og út í bíl.   Og það var ógeðslega gaman í þessu partýi.   Algjörlega þess virði.

Ég veit ég hef ekki nennt að blogga mikið enda ekki frá miklu að segja eða réttara sagt þá vill maður halda sumu fyrir sjálfan sig.   En mér dettur ekki í hug að biðjast afsökunar á því, þetta er mitt blogg og mitt partý og ég væli ef ég vil......annars ekki.

Veit ekki hvort glöggir taka eftir uppfærslunni á vefnum.   Ég sé breytinguna varla en það er mikill léttir að sleppa við teljarann af síðunni.   Suma daga fóru heimsóknir upp úr öllu valdi og gáfu manni nett í magann......  En enginn kvittar fyrir og það verður bara hver að eiga við sjálfan sig.   Ég meina, ég veit að systur mínar kíkja og vinkonur og frænkur en ég efast samt um að þær kíki 30-40 sinnum á mann á einum degi.......:lol:

En verið hjartanlega velkomin í heimsókn og ekki verra ef þið skiljið eftir "fótspor" :haha:

Later.....

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.01.2008 19:21:16 / hulda

Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla....!!

Happy_New_Year_by_clwoods.jpg picture by huldukonan

 

Gleðilegt ár, alla mina vänner....!!

Gamlárskvöld var hið ánægjulegasta að öllu leyti. Hrikalega góður matur að venju hjá frænku og tók ég með mér matargest. Fyrir voru frænka, mamma og pabbi, litla Sys og hennar fjölskylda. Allt fór sem best fram enda ekki við öðru að búast.....:D Litli frændi var dauðskelkaður við sprengjurnar og sagði í sífellu: Hulda janka, læti bommbomm og allir í krúttkasti yfir þessu! Hann bar sig samt vel og þóttist alveg cool en grúfði sig svo niður og hélt fyrir eyrun.

Þrátt fyrir leiðinda veðurspá heppnaðist árleg flugeldasýning höfuðborgarbúa með hinum mestu ágætum. Það var þokkalega hvasst uppi við Perlu um miðnættið í gærkvöldi og ég hefði fokið um koll ef ekki hefði verið haldið í mig, ég tókst næstum á loft í einni hviðunni og ég er ekki að ýkja!

Ég ætla ekki að strengja nein áramótaheit en vona svo sannarlega að árið verði áfram jafn ánægjulegt eins og það byrjaði og það gamla reyndar endaði!! :haha:

Gleðilegt sítt hár....!!   :lol: 

Later........


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.12.2007 00:28:59 / hulda

Ég hef lært.......

Ég hef lært... að besta kennslustofa í heimi er við fótskör eldra fólks.

Ég hef lært... að þegar þú ert ástfanginn, þá sést það.

Ég hef lært... að ef einhver segir við mig: „þú hefur bjargað deginum“, þá bjargar það mínum degi.

Ég hef lært... að barn sem sofnar í faðmi þér er ein friðsælasta tilfinning í heimi.

Ég hef lært... að það að vera réttsýnn er mikilvægara en að hafa rétt fyrir sér.

Ég hef lært... að þú skalt aldrei segja nei takk við gjöf frá barni.

Ég hef lært... að ég get alltaf beðið fyrir þeim sem ég hef ekki mátt til að aðstoða á annan hátt.

Ég hef lært... að það er alveg sama hversu alvarlegt líf þitt er, allir þurfa að eiga vin sem þeir geta hagað sér asnalega með.  (ójá!!!)

Ég hef lært... að stundum er hönd til að halda í og hjarta sem skilur, allt sem maður þarf.

Ég hef lært... að stuttur göngutúr með föður mínum í sveitinni á sumarkveldi þegar ég var barn gerði kraftaverk fyrir mig þegar ég var fullorðinn.

Ég hef lært... að við eigum að vera glöð að Guð gaf okkur ekki allt sem við báðum um.

Ég hef lært... að peningar kaupa ekki tíguleika.

Ég hef lært... að það eru þessir litlu daglegu hlutir sem gera lífið sérstakt.

Ég hef lært... að undir hörðum skráp hvers og eins er manneskja sem þráir að vera metin að verðleikum og elskuð.

Ég hef lært... að Guð gerði ekki allt á einum degi. Hvað fær mig til að halda að ég geti það?

Ég hef lært... að það að horfa framhjá staðreyndum, breytir þeim ekki.

Ég hef lært... að þegar þú ætlar að jafna um við einhvern, ertu aðeins að leyfa honum að halda áfram særa þig.

Ég hef lært... að ást, ekki tími, læknar öll sár.

Ég hef lært... að auðveldasta leiðin fyrir mig til að vaxa sem persóna er að umlykja mig með fólki sem er gáfaðra en ég.

Ég hef lært... að allir sem þú hittir verðskulda að vera heilsað með brosi.

Ég hef lært... að ekkert er ljúfara en að sofa hjá barni þínu og finna andardrátt þess við kinnina.

Ég hef lært... að enginn er fullkominn, fyrr en þú verður ástfanginn af honum/henni.

Ég hef lært... að lífið er hart, en ég er harðari.

Ég hef lært... að tækifæri glatast aldrei, einhver mun grípa þau sem þú misstir af.

Ég hef lært... að þegar þú uppskerð biturð, mun hamingjan banka annars staðar.

Ég hef lært... að maður á að hafa orð sín bæði mjúk og kær því á morgun gæti maður þurft að eta þau ofaní sig.

Ég hef lært... að bros er ódýrasta leiðin til að bæta útlit sitt.

Ég hef lært... að þegar nýfætt barnabarn heldur um fingur þinn, þá ert þú fastur á þeim öngli fyrir lífstíð.

Ég hef lært... að allir vilja lifa á toppi fjallsins, en öll hamingja og velferð skapast á meðan þú ert að klífa það.

Ég hef lært... að það er best að gefa góð ráð við aðeins tvær kringumstæður, þegar þeirra er óskað og þegar aðstæður eru lífshættulegar.

Ég hef lært... að ég get ekki valið hvernig mér líður, en ég get valið hvað ég geri í því.

Later........ 


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 18:32:34 / hulda

Þriðji í jólum.........

Og jólin hafa liðið allt of hratt!

Ég er búin að hafa ein bestu jól í manna minnum. Búin að borða góðan mat, sofa helling og endalaus friður og ró. Knús og kósíheit par exelans.  Hljótt í húsinu svo maður hefur sofið frameftir öllu og því var mjög erfitt að sofna í gærkvöldi á skikkanlegum tíma til að vakna til vinnu í morgun.
Góðar gjafir fékk ég; kross frá mömmu og pabba, Chanel bodyspray frá systrunum, vasa frá frænku, mynd og bland í poka frá Birnu, Marimekko-sængurver frá vinnunni og svo kærkomin bók frá Magga. Mjög svo sæl og glöð með þetta allt saman. Allavega tvö jólaboð eru eftir ennþá en ég hef stórpassað mig á því að borða ekki alveg yfir mig þessi jólin, ég hef ekki ennþá þurft að glíma við ljótuna á morgnana og er það vel.

Áramótin svo framundan og eru meiri líkur en hitt að þau verði jafn ljúf og dagarnir á undan hafa verið.....

Ein greinilega mjúk þessa dagana og í stöðugu jólaskapi........:haha:

Later.........


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 25
Klukkan
RSS tengill